Sællt veri fólkið! ég ætla að byrja á því að biðjast afsökunnar á bloggleysi!! það er búið að vera heavy mikið að gera og lítill tími til að henda inn reglulegum bloggum hérna:) en við gerum okkar besta.. Síðustu dagar hafa bara snúist um Cindarella story,, og mun öll næsta vika vera undirlög undir það líka!! koma 6 sýningar á 6 dögum.. NÓG AÐ GERA..!!
Í gær fórum við allveg 10-15 saman í bíó á Borat váá fallega snilldin!! við erum að tala um að ég hló mig máttlausann frá byrjun til enda,, og ligguð við í hléinu líka!! Þetta er algjör snillingur þessu karakter sem maðurinn er búinn að skapa!! Held að það sé mjög erfitt að hlægja ekki af þessari mynd!!! Mæli hiklaust með henni!! Hálf hættulegur þessi maður!!!
En í hádeiginu fengum við bræðurnir okkur Pizzu á 67,, sem er kanski ekki frásögu færandi en þegar ég labba þar inn rifjast ein hrykalega skemtileg minning upp, frá því þegar ég var að vinna þarna.. Ég skrifaði hana á gamla bloggið, en ætla að rifja hana upp fyrir ykkkur;);)...
Er ekkert heilagt í þessum heimi lengur!!!
Ég er ekki lengur viss hvort eitthvað sé heilagt í þessum heimi lengur, ég er allavegina farinn að efast stórlega um það. Ég skal útskýra afhverju þessi pæling kom uppí huga mér. Þannig var það að ég var að vinna í gær á Pizza 67, oki það er ósköp heilagt og gott og blessað og allur pakinn! Ég var búinn að vera upptekinn að baka allt kvöldið þannig ég komst ekkert til þess að svara í símann og taka á móti pöntunum eins og maður á til með að gera þegar maður vinnur þarna. En svo seinna um kvöldið, eða um svonna 8:40 leitið þá hringir síminn og viti menn ég gat svarað! Ég svara ósköp kurteislega í símann, "Pizza 67 góða kvöldið, get ég aðstoðað", þegar maður segir svonna í síman býst maður við því að fá svar í síman, t.d." Já, goða kvöldið, ég ætla að panta hjá ykkur pizzu". En ég fékk bara ekkert svar strax í símann, þannig ég endurtek mig aftur og segji "Pizza 67 góða kvöldið, get ég aðstoðað". Viti menn aftur fékk ég ekkert svar og var á leiðinni bara að leggja á, þegar ég heyri " Jáhh, goða kvöldið ég ætla að panta hjá þér pizzu" Oki alltílagi með það , þá spurði ég hana hvað hana langaði á pizzuna og hversu stór hun átti að vera. Viti menn þá byrjaði þetta óheilaga. Ég bíð á linunni eftir svari, meðan hinum megin við línuna byrjar konan að stynja, "óóó hættu þessu", svo koma nokkur hávær ohhh ohhhh ohhhh stunur.!!! ÞETTA ER ENGIN LYGI!!!! Ég var í símanum í góðar(SLÆMAR) 7 mín að taka niður tvær pizzur. Ég ætla að deila með ykkur nokkrum góðum línum sem komu í stununum!!
1. "Ohhhh, ohhh, þarna já!!", þá sagði ég, "HVAR segirru"(með kaldhæðina að vopni) 2. "Ég ætla að fá pizzuna með skinku og ohhh ohhh, " (þetta tók svonna 2-3 min að fá næstu álegstegund, sem varð síðar SVEPPIR) 3. Svo var spurt um heimilisfang " Ég er búinn að flytja,, ohhhhhh, hvar er þetta, ?svo kom bara ohhh ohhh ohhh... þarna held ég að karlinn hafi fundið the right spoot, því hún kveinaði að unaði!
Eftir þetta atvik átti ég ekki til stakt orð og var í góðu sjokki bara, því að konan sem var að panta pizzu var með mann niðrá sér að gæla við sig! Ég veit ekki með ykkur en er ekki svonna aðeins siðlegra að taka smá pásu meðan pizzan er pöntuð, en ég meina ef það er ekki hægt að taka pásu þá er það bara að bíða með að panta!! þetta var náttúrlega bara sjúkt og á ekki að gerast! Eftir þetta fór ég að velta fyrir hvort það væri ekkert heilagt í þessum heimi lengur, þetta er náttúrlega bara sjúkt!! Ég sem er saklaus á hinni línunni þjónustu reiðubúinn fæ bara frítt phone sex í beinni og óumbeðið, hvor var að þjónasta hvern!!! hehe, nei segji svonna mér fanst þetta ógeðslegt og fyrir þá sem halda að þetta hafi verið áhugavert þá var þetta það alls ekki!! Hrykalega spes lífsreynsla þarna á ferðinni sem ég varð bara að rifja upp með ykkur.. En meira hef ég ekki að sega að sinni..
Já, þessi orð eru orðin sem einkenndu gærdaginn og gærkvöldið! Í gær var frumsýing á söngleiknum Cindarella Story og heppnaðist hún líka svonna gríðarlega vel!! við erum að tala um að það heppnaðist örugglega allt, og voru mjög góðar viðtökur í salnum. Við mættum þarna um 5:30 og maður fann strax hvað það var góð stemming í hópnum og maður fann líka strax að þetta yrði geggjuð frumsýing.Það var allt á fullu að undirbúa sýinguna og spennan og tilhlökkunin var gígatísk:):).. Svo um 8 var hleypt og stúd fylltist salurinn og voru öll 130 sætin þétt setin. Svo byrjaði sýningin og fólk skemmti sér konunglega vel og svoleiðs ringdi yfir okkur hrósum eftir sýinguna. En eftir að leikara höfðu tekið við blómvöndunum og tekið við öllum þessum kossum og faðmlögum þá fögnuðum við aðeins leikhópurinn og var okku boðið uppá veitingar frá Subway, sem var reyndar langþráð því fæstir höfðu getað borðað fyrr en um 5 og ekki margir mikið, venga spennu. En það voru nú ekki allir jafn heppnir með subwayinn sinn. Þeir voru á bökkum og vissi enginn hvað væri á hvaða bát, þannig að t.d hun kristín fékk uppáhalds bátinn sinn, eða með TÚNFISKI:|,, ég segji bar hvað voru þeir að spa á subway að setja túnfisk á einhverja báta, komon, það borðar þetta enginn!!!:|..
En eftir þetta litlafrumsýninga partý var farið heim til sín í sturtu og farið svo til Trausta þar sem nokkrir krakkar úr sýningunni komu til að fagna geggjaðari frumsýingu, og var þetta þvílíkt fjör í gær:).. Gítar stemming einkenndist fyrstu klukkutímana og var sungið hástöfum,, eða allvegina ég, því ég er nánast raddlaus að dúndra þessum texta niður!! En við skemmtun okkur konunglega vel þarna í gær, og vil ég þakka Trausta kærlega fyrir að Hosta þetta partý í gær:):)... Hérna eru nokkrar myndir úr partýinu...
Ferksur á því að taka mynd... Kristín fylgist með af miklum áhuga...!! Davíð og Helgi mjög kátir:) Trausti vað skyndilega svangur, og hvað annað en gúrka!!!
(EF þið sjáið ekki myndinarnar eru þær í Myndir efst á síðunni) En já.. þetta var geggjað kvöld í gær.. Svo er það bara sýning í kvöld kl 8 og svo sýning á þriðjudaginn!!! Ég bara hvet alla að koma og sjá þetta stykki,, það var allvegina mikil ánægja í gær!! og héldum við að klappið ætlaði aldrei að hætta!! en meira er það ekki að sinni,, hægt er að skoða myndir úr eftir partýinu hér til hliðar!!
Undanfarnar 2 vikur er búnar að vera crazy.. Nóg að gera og ég hef aldrei á ævinni verið jafn feginn að fá fríkvöld eins og í gær. Það var awesome.
Á fimmtudeginum í síðustu viku vorum við Atli fengnir til að spila á Yello . Fórum þangað og það var drullugaman bara, þetta var í fyrsta skipti sem ég spila svona opinberlega og það var skrítin tilfinning. Vorum þarna til 2 að spila og ýmsir kíktu á okkur, vonandi að þeim hafi fundist gaman. Daginn eftir var svo mætt bara í skólann að vana..
Þessir tveir kíktu í heimsókn, flottir.
Föstudagurinn var helvíti skrautlegur. Drauugþreyttur eftir að hafa komið heim um hálf 3. Fylgdist með Gíslabikarnum og það var helviti gaman bara, drullu skemmtilegir leikir og dramatískur sigur. En ég fann það að eitthvað veikindi í kallinum, en lét mig þó hafa það að fara á leikritsæfingu.
Laugardagurinn ennþá skrautlegri þar sem ég var frekar veikur. En fór samt á lokahóf Keflavíkur og náði að gleyma því í smá stund að ég væri veikur og skemmti mér gríðar vel. Sálin hans Jóns míns voru að spila fyrir dansi, og dansarnir voru góðir ;)
Þetta átti svo eftir að koma í bakið á mér á sunnudeginum, enda var ég alveg útúr korti og mætti ekki í skólann fyrr en í gær haha. Allskyns vesen á mér alltaf. En svo í þessum veikindum öllum þá fór líka að styttast í Frumsýningu á leikritinu, og er hún á morgun! :) En fyrir ykkur sem langar að kíkja þá er uppselt ;) Kíkjið seinna.
Í miðjum veikindum kíkti ég niður í Geimstein stúdio og söng þar í lögunum sem ég er að syngja í í leikritinu og það var ýkt skemmtilegt bara, geggjað skemmtileg lífsreynsla og það er pottþétt að ég kíkji þarna aftur á næstunni, stay tuned bara..
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra nema bara að kvetja alla til þess að koma og kíkja á sýninguna Cindarella Story sem sýnd er í Frumleikhúsinu á næstunni, við auglýsum þetta pottþétt á síðunni bráðlega ;)
Setti inn örfáar myndir úr afmælinu hjá stelpunum (Bryndísi, Helenu, Þórhildi)
Já, það hefur verið ofur mikið að gera hjá okkur mörðunum þessa dagana, Cindarella story leikritið í fullum gangi, frumsýnt laugardaginn eftir viku, eða 28. okt.!! Mikill spenna fyrir þessu, og þess vegna hafa verið mikið af löngum og ströngum æfingum í vikunni. Og hvet ég fólk að koma og sjá þetta meistara stikki.! :) hehe. En á fimmtudagskvöldið kíkti ég og Helena Ósk á Yello. Þar voru þeir Davíð Már og Atli að spila og stóðu þeir sig bara helvíti vel sko, héldu uppi fínni stemmingu þann tíma sem ég var þarna. Var voðalega nice að geta komið þarna og tjillað, spjallað saman og jafnvel fengið sér einn kaldan eða eitthvað annað til að svala þorstanum ef svoleiðs stemming var í manni. Það versta er að það er svo hátt aldurstakmark þangað inn og komust mikið færri að en vildu, það vantar eiginlega svona stað til þess að geta komið saman og hlustað á trúbadora eða bara hreinlegar hljómsveitir! Hvað varð eigilega um kaffihúsakvöldin hjá FS..????
Svo var það hádegið sem menn voru búnir að bíða spenntir eftir. Já það var úrslitin í Grislabikarnum. Þetta var helvíti fínt mót, og var það komið á hreint að það yrðu nýjir meistarar þar sem Strawberrys höfðu dottið út úr riðlakeppninni. Liðið sem kom öllum á óvart var lið Jóns Odds, en það var hrykalega góð stemming í liðinu og má segja að þar hafi ýmsir komið vel á óvart, t.d eins og Sigurður Elíasson, hann var með tæklingar útum allan völl, og kýs ég hann mann úrlsitana. Þorsteinn var líka iðinn við að skora. En ( ) og Jón Oddur spiluðu til úrlsita og vann lið Boga ( ) mótið á dramtískan hátt, settu 2 mörk þegar 40 sek voru eftir. Og stálu senunni, Alex var kosinn maður mótsins. Íþróttaráð FS fær stórt hrós frá mér fyrir hversu góðir vinningarnir voru, holy mólí sko, eintómar inneignanótur hingað og þangað, ekki slæmt það!!
Það var hart slegist í Bear cup í ár!!
En í gær, Föstudag, fórum við merðirnir í afmæli hjá þremur góðum vinkonum okkar:).. Bryndís, Helena og Þórhildur voru að halda uppá afmælin sín í gær og var þetta bara askoti fínt teiti hjá þeim. Sjaldan verið eins spes stemming eins og ággúrad þarna. Afmælið byrjaði bæjarskipt! Það var horn þar sem vinkonur Bryndísar úr Mosó voru og svo vinirnir í keflavík í öðru horni, mjög skemtilegt og spes. En svo loksins breyttist þetta og það rættist allveg úr þessu afmæli. Og vil ég nýta tækifærið og þakka fyrir mig:) fínasta veisla þarna á ferðinni. Kanski koma einhverjar myndir úr veislunni, kemur i ljós hvað við vorum duglegir að taka myndir:) hehe.
En já. ég lennti í svaka bobba. Kl var 8 og afmælið byrjarði kl 7:30. og ég var ekki búinn að kaupa afmælis gjöf. En ég er nú þekktur fyrir að vera frumegur og redda hlutunum. Þannig ég skrapp útí Sparkaup, og "bakaði kökur" með smá hjálp frá Myllu bakstri ( fyrir fatt lausa keypti ég kökur) Keyptir svo sitthvor 16 kertin á kökurnar og skrifaði svo kort:D þetta vakti miklu lukku þar til Garðbúarnir komu með svaka frumlega gjöf, þar sem þeir höfðu tekið töff myndir af þeim saman og gefið þeim. Hrykalega töff gjöf. og þakka ég guði fyrir að hafa komið á undan þeim, annars hefði min gjöf verið ekki einu sinni hlátursefni!!!.
Svo ánægðar:D:D hehe fúff.. búið að blása öll kertin!!:D
en meira var það ekki að sinni.. Endilega kommenta á þetta, til að pressa á ný blogg reglulega:):).. Einar Trausti Kveður....
Kvöldið byrjaði snemma hjá okkur strákunum en við mættum allir heim til Rúnars Inga sem að sendi gamla settið í bíó og út að borða á meðan. Nóg var um ölið og ekki var skapið verra. Fyrst vorum við örfáir en svo fór fólkið að streyma inn og mikið var hlegið yfir dáleiðsluspólu sem að var sett í tækið af honum Rúnari síðan á Benidorm. Strákurinn að fá bestu fullnægingu í heimi og leitandi að typpinu á sér út í sal, það er mögnuð sjón. Myndavélin var grimmt notuð í þessu fyrirpartýi og ég hef skoðað þessar myndir og einhvernveginn þá veit ég að ég og Einar Orri enduðum með kúreka hatta sem að einhver annar átti, sorrý (þeir taka það til sín sem eiga hattana haha). En hvað um það, við héldum út í Sangerði þar sem lítið mál var að finna þetta samkomuhús. Þegar inn var komið var diskó konungurinn sjálfur út í horni að þeyta skífum og lappirnar á mér grátbáðu mig um að fá að fara að dansa, sem ég leyfði þeim. Þetta ball var svona týpískt FS ball eitthvað, mikið um kossa, heita dansa og drama.. Slúðrin eru á 50% off fyrir bgudlaugsson menn á svona böllum þar sem að enginn er að fela sig neitt fyrir myndavélunum. Gaman af því.
Eftir ballið var svo ferðinni heitið beinustu leið út í rútu og þar var sungið hátt og snjallt lagið "Niðrí bæ, niðrí bæ niðrí bæ" Og þangað fórum við.. Restin af kvöldinu er í misjafnlega góðu minni en ég kem með nokkur stikkorð. "Einar Orri, Paddy's, lokun, Trix, lokun, Borða, Pepporini Rist, Aron Ómars, Einar Orri, reiður, öllari, labba, video, heim"
Áætlaður heimkomu tími var settur "áður en skólinn byrjar" og það stóðst, enda við Einar komnir heim eldsnemma, klukkan að slá í sexuna. 1 og hálfum tíma seinna er vaknað og skellt sér niðrí Sundlaug Keflavíkur þar sem að við vorum að fara í "Waterpolo" sem er líklega ein erfiðasta íþrótt í heimi. Og auðvitað vorum við með ferskustu mönnum á vellinum (lauginni). Hef þetta ekki lengra.. Þið sem hafið áhuga á myndum frá kvöldinu (Fyrirpartýinu og Eftir ballið) Þá eru myndir komnar hérna til vinstri.. Ég einhvernveginn steingleymdi myndavélinni á meðan ballinu stóð. Enda upptekinn við að skemmta mér. :)
Jæja,, þá er geðveikinn að fara í smá pásu,, loksins segji ég nu bara:D Lærdómurinn var svakalegur fyrir Mánudaginn,, lesa 330 blaðsíðna ensku bók og skila 5 bls ritgerð,, klikkun:S,, en ég ætla nu ekki að láta ykkur koma hingað og lesa um að ég sé ekki sáttur hvað það var mikið að læra:d hehe.. heldur ætla ég að byrja að láta ykkur vita sem heyrðuð þetta ekki í dag, þá er búið að færa ballið með Dj.Páli Óskari af H-punktinum yfir í Sandgerði..
Þetta var reyndar svolítði skemtilegt í dag.. Kjartan Már (formaður skemtinefndar FS) kom uppá svið og byrjaði að kynna sig.. Þarna fékk ég nú að tilfinninguna að orðrómurinn væri sannur að það ætti að færa ballið og bætast við fullt af miðum. En já hann byrjaði að segja: "Vegna miklliar aðsóknar og eftirsóknar eftir miðum þá höfum vði ákveðið að færa ballið og bæta við miðum" Þarna voru allir bra YES,, score.:D En þá kom hann með að ballið yrði haldið í samkomuhúsinu í Sandgerði, þá voru ekki allir jafn kátir. En svo kom punkturinn yfir I-ið það bættust aðeins 30 miðar við!! Ég veit ekki með ykkur, en mér fannst þetta ekki góður leikur að færa ballið í Sandgerði til að bæta 30 miðum við, annað mál hefðu þetta verið 50-100 miðar eins og heyrst hafðist!! En svona er þetta!!
En ég veit að mér og mínum vinum hlakkar hrykalega mikið til og ætlum við okkur að gera mjög mjög gott mót þarna og dansa fram í rauðann dauðann:D:D:D..
Þarna mun hann njóta sín:D:D
Shiitt. Þetta verður geggjað Djamm:D
En við komum svo með myndir og ferkst blogg eftir Djammið á fimtudaginn:).. hef allavegina mjög góða tilfinngu fyrir þessu öllu saman:) En endilega vera dugleg að kommenta á þetta hjá okkur,, fínt að vita hvort við erum á réttri leið. En ég lofa ykkur svo nýrri Pælingu frá mér á næstunni:):).. en þangað til næst.. Later
Þið hafið væntanlega tekið eftir því að þetta er ný síða hjá okkur mörðunum. Við höfum báðir verið með einstaklings blogg í gegnum tíðina og erum orðnir þreyttir á þeim síðum. Þessvegna datt okkur það snjallræði í hug að sameina krafta okkar í einni síðu, bæði prufa nýtt kerfi og prufa nýjar hugmyndir og ýmislegt. Við munum bæði vera með einhverja nýja liði sem að koma bráðlega og einnig taka eitthvað af okkar gömlu síðum sem við uppfærum og betrumbætum. Það verður líka eitthvað um myndir, og auðvitað er alltaf skemmtilegast að skoða þær ;)
Þess má geta að myndirnar úr pulsupartýinu hjá 2.flokknum eru komnar hérna inná og finnast hérna til vinstri undir Myndir. Það eru líka til video frá kvöldinu og við ætlum að reyna að negla þeim hingað inn líka.
Þrátt fyrir að vera mjög uppteknir menn þá ætlum við að gera okkar besta við að halda þessari síðu ferskri og skemmtilegri. Þannig að um að gera, addið okkur í tengla og kíkiði við á blogg rúntinum. Ekki vera feimin við að skrifa komment, segið okkur hvað ykkur finnst og gerum þetta skemmtilegt.